Fín stelpa
föstudagur 27. maí '05
Í morgun kom kona í heimsókn til þess að vikta mig og skoða mig. Hún sagði að ég væri fín stelpa og að ég er dugleg að stækka. Þegar hún Anna Rut, ljósmóðir, kom um daginn var ég 3555gr og núna 5 dögum síðar er ég orðin 3700gr.
Hann Stefán stóri bróðir minn þurfti að sína henni alla bílana sína og þau töluðu heilmikið saman. Hún sagði líka að hún atlaði að koma aftur næsta föstudag eftir viku og gá hvað ég hef stækkað mikið þá.
Þegar konan var farin gaf mamma mér að drekka og svo sofnaði ég. Þá áhvað mamma að fara inn í eldhús að baka skúffuköku en ég vaknaði og vildi fá að tala við einhvern. Vegna þess að mamma var upptekin við að baka sagði hún Birki, stórabróður mínum að fara og tala aðeins við mig. Hann kom til mín og við horfðumst í augu í smá stund og svo varð ég bara svo þreytt að ég sofnaði. ...En ekki nóg með það Birkir sofnaði líka...
"Anna
Sjáiði bara! Mamma tók mynd af okkir þar sem við liggjum bæði sofandi í pabba og mömmu rúmi. :)
Dótið mitt
miðvikudagur 24. ágúst '05
Warning: getimagesize(/web/n/myndasafn//frettir/vefrun.com/5anna_og_hondin.jpg) [function.getimagesize]: failed to open stream: No such file or directory in /web/vefrun.is/subdomains/anna/config/vefur_functions.php on line 448
Warning: Division by zero in /web/umsjon/vr2.2.vefrun/lib/functions/algengt.php on line 46
Skemmtilegasta dótið sem ég á er ekkert venjulegt dót. Það er nefnilega vinstri höndin mín. Ég get setið í stólnum mínum eða legið á bakinu og horft á höndina mína lengi lengi.
Höndin bara birtist allt í einu. Hún stóð beint út í loftið og ég tók eftir henni. Svo, stundum þá hreifist hún svoldið eða hverfur alveg. Hún hreifist hún svo skemmtilega stundum, svo á morgnanna áður en pabbi fer á fætur er líka gaman að leika við hann. Ég horfi á hann og brosi og tala við hann og hann opnar stundum munninn sinn alveg upp á gátt og ég reyni að setja höndina upp í hann.
Það var alveg rosalega merkileg uppgötvun þegar ég gerði þetta í fyrsta skipti. Ég varð alveg hissa og rak upp stór augu. Reindar verð ég enn svoldið hissa á sviðin þegar þetta tekst hjá mér þetta er nefnilega alveg svakalega erfitt.
