Tennur spennur
þriðjudagur 13. júní '06
Warning: getimagesize(/web/n/myndasafn//frettir/vefrun.com/90anna_med_8_tennur.jpg) [function.getimagesize]: failed to open stream: No such file or directory in /web/vefrun.is/subdomains/anna/config/vefur_functions.php on line 448
Warning: Division by zero in /web/umsjon/vr2.2.vefrun/lib/functions/algengt.php on line 46
Síðustu daga hefur hún Anna litla verið að slefa enn meira en venjulega, svo mikið að það er hægt að vinda peysurnar hennar og samfelluna. Auk þess má sjá vatnsflauminn með berum augum því hann hefur verið næstum því 'none-stop' allan daginn.
Í gærkveldi kom svo skýringin á öllum þessum vatnsaga.
Hún Anna er komin með tönn númer sjö, og átta! Nánar tiltekið eru þetta jaxlar, báðir í efri góm, annar hægra megin og hinn vinstra megin.
Í tilefni af þessum merku tímamótum læt ég fylgja með nokkrar myndir af Önnu. Á efri myndunum sést Anna ganga á milli stóru sistkyna sinna, Helga og Marínar. Þessar myndir voru teknar í lok Apríl en þá var Anna að byrja að sleppa sér. Núna ráfar hún um allan daginn, syngjandi í þokkabót, nema kannski þegar hún borðar eða sefur.
Á neðri myndunum er svo Anna sitjandi við matarborðið, sem er hin uppáhalds iðja hennar (það að borða), og að sjálfsögðu varð að hafa eina mynd þar sem sést í tennurnar, þó svo að þessar séu 'gamlar'. Það er kannski svolítið erfitt að mynda þessar nýju. ;)
Anna með furðusvip
fimmtudagur 9. nóvember '06
Warning: getimagesize(/web/n/myndasafn//frettir/vefrun.com/25anna_med_furdusvip.jpg) [function.getimagesize]: failed to open stream: No such file or directory in /web/vefrun.is/subdomains/anna/config/vefur_functions.php on line 448
Warning: Division by zero in /web/umsjon/vr2.2.vefrun/lib/functions/algengt.php on line 46
Héðan er allt gott að frétta. Anna hefur þó verið svoldið einmana þessa vikuna þar sem Stefán fékk að fara með pabba sínum upp í sveit í vinnuna. Annars er hún mun rólegri þegar hann er ekki heima þannig að það er allt mun auðveldara fyrir okkur sem eldri erum og meiri vinnufriður.
Hún Marín hefur verið dugleg að koma og heimsækja okkur og Anna verður allaf svo glöð á sjá hana. Á mánudagskvöldið komu þau, Marín og Valdi, og Anna vildi endilega máta úlpuna hennar systur sinnar. Meðfylgjandi mynd var tekin á meðan á þeirri athöfn stóð og akkúrat þegar þessi mynd var tekin heyrðist hávært geysp frá Tinnu, sem framkallaði þennan furðusvip á andlit snúllunnar.
